Friday, May 05, 2006

Afstressun

Þessa stundina er ég að vinna í afstressun og afslöppun. Þetta er búið að vera ansi strembið hjá mér...to be honest þá veit ég ekki einusinni hvað ég er búin að sitja stíft fyrir framan tölvuna í marga daga..hmm...held rétt yfir eina viku. Presentationið hjá mér í morgun fór frekar einkennilega...mér fanst prófessorinn fara anski hratt yfir og ræddi ekki mikið við hvern og einn. Fljótlega kom að mér og þá ætlast hann ekki til að ég segði neitt...hann bara labbaði uppað plaggötunum mínum og skoðaði mótelið mitt hummandi og kinkaði kolli mjög reglulega og benti svo á eina af myndunum og spurði..."er þetta viður", þegar ég sagði já þá hummaði hann áfram og spurði mig svo af hverju ég notaði þessi form og þegar ég svarað því hummaði hann aðeins meira og sagði mér svo að fyrir FINAL PRESENTATIONIÐ ætti ég að bæta trjám inná eina af myndunum mínum.....HA!!!!! Final hvað....ég hélt að þetta væri the final one!! Svona er að skilja ekki tékknesku..grrr. En ég er ánægð með að hann sagði eigilega ekkert við mig, ég held það sé góðs viti því ég tók eftir því að það eina sem hann sagði við aðra var eitthvað neikvætt eða slæmt, svo hann hafði greinilega ekkert alvarlegt út á mitt að setja. En við erum semsagt ekki að fara að ræða þetta verkefni neitt meira en verðum með final presentation í lok annarinnar ásamt klásúru verkefninu sem er næsta verkefni mitt. En við eigum að vera að vinna fyrir eina stærstu kristal og gler verksmiðjuna sem á nú mjög vel við hæfi ;) Ég er sem sagt að fara að hanna kertastjaka sem á að vera aðlagandi og sölulegur fyrir túristana. Á þriðjudaginn förum við í verksmiðjuna sem er um tveggja tíma keyrsla útúr Prag, og skoðum allt sem hægt er að skoða :)

Nokkrir úr bekknum mínum buðu mér að koma á sunnudaginn á uppákomu sem ég held að sé rétt utan við Prag eða allavega ekki inní miðborginni. Þarna verður Roni Size meðal annarra dj-a að spila. Mér var sagt að það væru þrjú stór svið og eitt af þeim er utandyra svo þetta verður ábyggielga rosa stemning :)

Ég kveð að sinni úr bongóblíðunni :)
|