Wednesday, May 10, 2006
Skólaferð
Þá ætla ég að segja ykkur frá skólaferðinni sem við fórum á þriðjudaginn. Við fórum öll í risa glerverksmiðju sem er staðsett um 2 tíma frá Prag. Farið var á þremur bílum og svo lítilli rútu. Stelpa í bekknum mínum hringdi og bauð mér og Joe að koma með sér en Joe vildi frekar fara í rútunni þar sem væri fleira fólk....en ég þakkaði boðið og skellti mér í bílinn hennar sem var pínulítill KA bíll, Það fór samt vel um okkur í honum. Mikið hlegið og mikið gaman...en ég skildi náttúrulega ekki nema brot af bröndurunum eða bara það sem var þýtt fyrir mig. Við lögðum fyrr af stað en hinir því að foreldrar stelpunnar (Radka) sem var bílstjórinn, eiga heima 10 mínútur frá verksmiðjunni svo það var búið að útbúa morgunverðarborð handa okkur þegar við komum á staðinn. Svo fórum við í verksmiðjuna og hittum alla hina....Joe kom með skrýtinn svip á móti mér og sagði að hann hefði setið fyrir aftan bílstjórann sem var svo mikil svita fýla af að hann hefði þurft að halda niðri í sér andanum alla leiðina!! Hahaha honum var nær að afþakka litla KA bílinn.
Eftir að við skoðuðum verksmiðjuna fórum við í mat á local stað og veðrið var svo gott að við gátum borðað úti. En þetta var svo fínn staður að þau gátu bara búið til 6 rétti af hverjum rétti svo hún stóð þarna gengilbeinan og gargaði yfir okkur hvað væri til boða og svo sagði hún ok hver vill gúllasinn og þá átti maður að vera snöggur að rétta upp hönd !! Já frekar spes..ég endaði með því að panta vont pasta sem synti í smjöri! En eftir þetta ævintýri fórum við á glerlistasaf og fengum túr um það...á tékknesku auðvitað. En þá var næst haldið upp að byggingu sem var byggð 60 og eitthvað en hún fékk nýverið verðlaun frá tékkum fyrir að vera besta tékkneska bygging 20 aldarinnar. Hún var ekki mjög frínileg í nærmynd og allt inní henni var mjög slappt og frekar ljótt en í fjarska leit hún ágætlega út. En þessi dagur var mjög skemmtilegur og vel heppnaður að mínu mati :)
Morgunverðurinn heima hjá Rödku

Afslöppun eftir að hafa skoðað glersafnið..

Bekkarmynd með prófessor og aðstoðarkennara, bílstjórinn tók þessa mynd svo við erum þarna öll :)

Verðlauna byggingin í fjarska...

Byggingin nálægt...

Útsýnið frá byggingunni...

Á heimleið, Tomash og Pavel...

Bílstjórinn, Radka...

<< Home