Tuesday, March 29, 2005

Góða kveldið, ég er enþá í Danmörku og fer ekki heim fyrr en á sunnudaginn. Ég fór samt í skólann í dag, en reyndar ekki minn skóla heldur Ingibjargar. Mér leið ekki eins og ég væri í skóla því að byggingin var svo flott og það voru rosa flott og stór málverk upp um alla veggi og allt var svo vandað og snirtilegt. Skólar sem ég er vön að vera í eru að hrynja og rotna. Þar eru ekki einusinni veggir málaðir og klósetin eru eins og á versta skemmtistað (kanski svolítið ýkt). En svo virðist sem listafólkið fái alltaf ljótasta umhverfið. Mjög skrýtin pæling þar sem hönnuðir og listafólk vinnur við það að gera umhverfið fallegra og skemmtilegra. En svona er þetta víst.
Ef þið viljið fá fréttir af því hvað ég er búin að vera að gera hérna í Danmörku þá getið þið kíkt á bloggið hennar Ingibjargar 
Ég skrifa svo líklegast ekkert aftur fyrr en ég kem heim. Bless í bili...
|