Tuesday, March 22, 2005

Við Edda erum búnar að hafa það æðislega gott og gaman hér í Sheffield. Við erum búnar að ferðast út í sveit og niður í miðbæ og út um allt. Susan keyrði með okkur út í sveit að skoða landslagið og litlar áhugaverðar verslanir sem þar voru. Svo fórum við og fengum okkur hádegismat með fallegt útsýni yfir landslagið út um gluggann. Daginn eftir fór Ceri með okkur í risa stórt “hús” (meira höll) úti í sveit þar sem fjórar manneskjur búa og þau selja fólki inn í “húsið” og garðinn sinn til þess að skoða. Við eyddum deginum þarna og ég tók miljón og eina mynd. Alveg meiriháttar að skoða garðinn. Í dag fórum við í miðbæinn að skoða okkur um og svo tókum við sporvagninn í Medow Hall, sem er mollið í Sheffield. Við vorum að koma heim eftir vel heppnaða verslunarferð þar sem Edda missti sig alveg í innkaupum og gekk um mollið með ELLE poka og fleiri flott merki!!! Núna erum við að bíða eftir að Sara komi í heimsókn og þá ætlum við að borða kvöldmat saman og hafa það kósý. Svo er það bara að pakka og fara snemma að sofa því að við förum til Danaveldis eldsnemma í fyrramálið. Svo ég kveð í bili og læt ykkur svo hafa fréttir af ferðalaginu þegar ég kem heima aftur.
|