Tuesday, April 05, 2005
Það er ágætis veður hérna, þó að það sé ekki mikil sól þá er mjög hlýtt. Það hefur sínar afleiðingar vegna þess að það er komið líf í köngulær og alls kyns kvikindi. Í gærkvöldi áður en ég fór að sofa þá var ég inná baðherbergi við vaskinn að þvo mér um hendurnar og þá sá ég eitthvað risastórt og svart koma askvaðandi að mér niður úr loftinu. Ég gargaði og stökk til þannig að hlussan prílaði aftur upp strenginn og kom sér makindalega fyrir í loftinu. Ég hljóp inní herbergið mitt og ákvað að ég gæti ekki látið hana eiga sig vegna þess að þá ætti ég ekki eftir að þora að fara inná baðherbergið. Svo ég greip til örþrifa ráða og náði í Mr Muscle og hljóp inná bað og spreyjaði upp í áttina að kvikininu. Það svínvirkaði því hún hrundi um leið niður úr loftinu og lenti hjá vaskinum og byrjaði að hlaupa um þar, og ég á eftir að spreyja á hana á fullu. Ég áttaði mig á því að ég var búin að spreyja yfir tannburstana hjá húsfélögunum þannig að ég þurfti að skola þá á eftir. En Köngulóin varð örmagna af öllu eytrinu og gafst fljólega upp á hlaupunum. Ég var í svo miklu panick attacki að ég hélt áfram að sprauta á hana á fullu svo ég held að hún hafi druknað í Mr Muscle polli frekar en eitthvða annað. Þegar kvikindið hreifi sig ekki lengur þá hljóp ég inn í herbergi og setti á mig uppþvottahanska og tók fullt af pappír og horfði á eftir hlussunni ofan í skólpið. Ég fékk svo auðvitað köngulóa marttröð í nótt. En sumarið er rétt að byrja svo ég má búast við mörgum panick attöckum. Ég sigraði hlussuna en sigraðist ekki á hræðslunni...

<< Home