Sunday, April 10, 2005

Ég fór í afmæli til bekkjarsystur minnar, Natalie, í gærkvöldi. Við vorum alls 5 sem fórum svo út að skemmta okkur. Ég var sú eina sem kom með afmælisgjöf, gaf henni Sigurrós, ágætis byrjun. Hún varð mjög ánægð og sendi mér sms áðan til að segja mér hvað henni fyndist diskurinn góður. Við fórum í félagsmiðstöð skólans míns. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór þangað og líklegast það síðasta. Skrítnustu reglur og skipulag sem ég hef vitað. Staðurinn skitpist í tvö stór svæði þar sem voru barir og dansgólf. Eftir að hafa staðið í röð úti til að komast inn þurfti að bíða í röð eftir að komast inná þessi tvö svæði. Ef maðru þyrfti svo að skreppa to the loo þá þurfti maður að fara út úr svæðinu og fara aftur í röð til að komast inn...alveg glatað. En það var ekki bara það heldur voru skilti við dansgólfið þar sem á stóð að það mætti ekki vera með drykki eða reykja á dansgólfinu. Svo voru verðir að labba um allt kvöldið til að pikka í fólk og skamma það. Okkur tókst að skemma okkur vel þrátt fyrir þessar furðu reglur. Það má eigilega kalla þessar reglur og þetta skipurlag einstakt því að ég held að þetta sé eini staðurinn með svoa sístem. Við enduðum svo kvöldið með því að fá okkur djúsí kebab :)
En núna er ég að fara að hafa mig til því ég er að Joe og Ceri eru að koma og sækja mig því við erum að fara í kirkju saman.
Adíjós...
|