Wednesday, April 13, 2005

Loksins loksins dreif ég mig út að skokka!!! Ég röllti niður fjallið sem ég bý á og þar hitti ég Söru, við skokkuðum svo um í rosalega fallegum garði sem ég hef aldrei farið í en ótalsinnum labbað utanum. Þar voru mjög hentugir stígar til að skokka á. En eftir skokkið þurfti ég svo að klífa upp fjall til að komast heim, hélt á tímabili að ég mundi ekki meika það svo ég var farin að spá í að húkka mér far, en fanst það nú ekki viðeigandi þar sem markmiðið með þessari ferð var að púla og reyna svolítið á mig ;)
|