Thursday, April 14, 2005

Ég var að koma frá Maríu þar sem við horfðum á dvd ásamt því að fá okkur smá óhollustu...ehhem...snakk með öðrum orðum. En eftir að ég kom heim er ég búin að vera titrandi og skjálfadi því að eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn í herbergið mitt var að draga fyrir gardínurnar...og vitir menn...situr þá ekki ein af hlussunum í loftinu hjá mér!!!!! Arrrrrrg ég gæti bilast!!! Það er eitt að hafa þær inná baði því þar eyði ég fæstum stundum mínum og sérstaklega eftir köngulóa fárið, en það er annað að hafa þær þar sem ég sef.... úfff. Ég er búin að vera með ógeðistilfinningu alltaf þegar ég fer inná bað...skima í allar áttir og reyni að vera eins fljót þar inni og ég get. En núna eru þessi kvikindi komin inní herbergið mitt!!! Mér er sko nóg boðið, er eigilega orðin reið út í þær. Ég er að verða búin með Mr Muscle. En, á meðan köngulóin hlussaðist um loftið hjá mér var ég að panikka og reyna að finna bestu leiðina til að drepa hana án þess að hún mundi detta úr loftinu og lenda ofan í rúminu mínu. En að lokum skreið hún niður á vegg svo ég tók snögga ákvörðun og fór með glas (sem ég er búin að henda bæ the vei) og setti yfir hana. Hún stökk um glasið eins og villt naut á meðan ég stakk blöðum undir það. Þarna stóð ég eins og asni uppí rúminu mínu með hjartað á fullu, ég held ég hafi hrunið í blóðsykri við þetta. En að lokum tók ég mig á og togaði pappírinn utan um glasið og hljóp með það inná bað og henti því í vaskinn og hljóp svo inní herbergi og greip hjálparsveininn minn, Mr Muscle. Ég var öruglega eins og óð manneskja í leit að vopni til að bjarga lífi sínu. En ég hljóp inná bað og byrjaði að sprauta á fullu ofan í glasið, sem betur fer var hún enþá þar. Ég gaf henni botnfylli af hjálparsveininum og beið smá stund en svo kastaði ég henni á glæ ofan í klósetið og sturtaði henni hressilega niður. Fjúff!!! Ég er enþá skjálfandi eftir þetta og get varla pikkað inn, er alltaf að gera villur. En ég get ekki afborið það að fá þessi hlussu kvikindi inn til mín svo ég ætla að kaupa fullt af sterkasta pöddueytrinu sem ég finn og spreyja því í alla króka og kyma svo að hlussurnar fái það á tilfinninguna að þær séu ekki velkomnar í mín hús. Það liggur við að ég baði mig uppú eytirnu, en það er kanski of langt gengið....eða hvað?
|