Tuesday, April 12, 2005

Jæja nú þýðir ekkert annað en að fara að hreyfa sig eitthvað. Ég fór í dag með Natalie í sportvörubúð til þess að fá hjálp við að velja góða hlaupaskó. Hún er nefnilega fyrrverandi hlaupari, eða það má kanski frekar segja að hún hafi verið að æfa hlaup á sínum enn yngri árum. Alveg furðulegt hvað hlaupaskór þurna alltaf að vera ljótir. Skjannahvítir með samfléttuðum skrýtnum litum. Ég þurfti að fara í herradeildina til þess að finna eitthvað dökkleitara. En ég endaði með hvíta og silfurgráa skó með rauðu ívafi. Alveg hreint ágætir í útliti og rosalega konfí. Ég og Sara erum að fara að skokka saman reglulega í garði sem er hérna rétt hjá mér. Við hefjum skokkið á morgun.
En annars gekk bara vel í skólanum í dag, komst að því að það voru ekki allir með sömu hugmyndir um geimslurými eins og við má búast, fullt af hugmyndum frá hverjum og einum. Allavega er ég rosalega spennt fyrir þessu verkefni og á eftir að hafa mjög gaman við að vinna það.
|